Skref1
- Myljið stafina í matvinnsluvél eða blandara.
- Setjið í skál og takið 2 msk. úr skálinni og setjið í aðra.
Skref2
- Myljið kexið í vélinni þar til það verður eins og sandur.
- Bræðið 200 g af Síríussúkkulaði og hellið því saman við kexblönduna í vélinni ásamt vanillu.
- Hrærið og setjið loks rjómann og brjóstsykursmulning út í, nema þessar 2 msk.
- Geymið deigið í ísskáp í 30 mínútur.
Skref3
- Mótið kúlur úr deiginu, stærð fer eftir smekk.
- Leggið á fat klætt bökunarpappír og setjið í frysti eða ísskáp í smá stund.
Skref4
- Bræðið hvíta súkkulaðið.
- Setjið kúlurnar í súkkulaðibað og sáldrið brjóstsykursmulningnum yfir kúlurnar.
- Geymið í ísskáp.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir