Skref1
- Hitaðu ofninn í 180 gráður og raðaðu um 15 stk. bollakökuformum á ofnplötu.
Skref2
- Blandaðu saman hveiti, lyftidufti og salti og settu til hliðar.
Skref3
- Hrærðu saman smjör og sykur í um 4 mínútur eða þar til blandan verður ljós og létt.
Skref4
- Bættu eggjunum saman við, einu í einu og hrærðu rólega vel á milli.
Skref5
- Blandaðu vanilludropunum saman við mjólkina og blandaðu henni saman við ásamt hveitiblöndunni, smá og smá í einu og hrærðu vel á milli.
- Skafðu innan úr skálinni og hrærðu þar til allt hefur blandast vel saman.
- Passaðu þið að hræra ekki of mikið því þá getur deigið orðið seigt.
Skref6
- Settu deigið í bollakökuformin, passaðu þig á því að fylla ekki mikið meira en 2/3 af forminu.
- Bakaðu í rúmlega 15-18 mínútur, eða þar til kökurnar eru tilbúnar.
- Kældu kökurnar alveg áður en þú setur kremið á þær.
Krem
- Hrærðu saman mjólk, flórsykri, smjöri, vanilludropum og salti á miklum hraða í um 5 mínútur.
- Bræddu súkkulaðið undir vatnsbaði og blandaðu því varlega saman við.
- Sprautaðu kreminu á kökurnar og skreyttu með skrauti af vild.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir