Skref1
- Sjóðið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið hefur bráðnað.
Skref2
- Blandið hveitinu og saltinu saman við og hrærið rösklega þar til deigið sleppir pottinum og myndar kúlu úr deiginu.
- Takið pottinn af eldavélinni, setjið deigið í aðra skál og látið kólna örlítið.
Skref3
- Þegar deigið hefur náð stofuhita er eggjunum bætt saman við, einu í senn og hrært varlega á milli með hrærivél.
Skref4
- Setjið smjörpappír á ofnplötu.
- Setjið deigið í sprautupoka og sprautið því á plötuna með jöfnu millibili.
Skref5
- Bakið við 200 gráðu hita í 20 mínútur, passa þarf að opna ofninn alls ekki fyrstu 15 mínúturnar af bakstirnum.
- Hitinn á bakaraofnum er mjög mismunandi, ef ykkur finnst bollurnar vera að brúnast heldur fljótt er gott að lækka hitann í 170 gráður eftir 5 mínútur.
Skref6
- Látið bollurnar kólna alveg áður en sett er á þær.
- Klassíska fyllingin er þeyttur rjómi, sulta og glassúr auk þess sem bollurnar eru toppaðar með glassúr.
Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir