Skref1
- Mælið og blandið saman hveiti, lyftidufti og salti saman í skál.
- Hrærið sykur og smjör saman í hrærivél.
- Bætið eggjum við, einu í einu og hrærið vel á milli.
- Bætið vanillunni saman við.
- Hellið hveitiblönduninni saman við smjörsykurinn og hrærið vel saman.
- Saxið hnetur og möndlur rétt aðeins og blandið þeim saman við deigið.
Skref2
- Núna ætti að vera komin fínn deigklumpur sem er rétt aðeins klístraður en helst alveg saman.
- Setjið bökunarpappír á bökunarplötu, skiptið deiginu í 3 hluta og setjið hvern hluta á bökunarplötuna.
- Mótið hvern hluta í langan hleif sem er um 2 cm á þykkt og þrýstið aðeins á hann.
- Hleifurinn mun stækka aðeins í ofninum.
- Penslið með léttþeyttu eggi og stráið ef þið viljið örlitlum sykri yfir.
Skref3
- Bakið í miðju ofnsins í 23-27 mínútur.
- Takið út og látið kólna.
- Lækkið hitann í 150 °C.
- Þegar hleifarnar hafa kólnað eru þeir skornir á ská í 1-2 cm þykkar sneiðar.
- Sneiðarnar eru lagðar aftur á bökunarplötuna og bakaðar áfram í um 30 mínútur eða þar til þeir eru orðnar gylltir.
Höfundur: Theodóra J. Sigurðardóttir Blöndal