Menu
Grilluð pizza með súkkulaði og sykurpúðum

Grilluð pizza með súkkulaði og sykurpúðum

Hér er hægt að nota tilbúið pizzadeig eða búa til sitt eigið. Ef þið viljið búa til ykkar eigið mælum við með uppskrift okkar að pizzudeigi en fyrir svona eftirréttapizzu er gott að bæta við 2 msk. af sykri út í deigið.

Innihald

1 skammtar
pizzadeig (að viðbættum 2 msk. af sykri)
súkkulaði í bitum
hreinn rjómaostur frá Gott í matinn
pekanhnetur eða aðrar hnetur, grófsaxaðar
sykurpúðar, skornir í tvennt
fersk mynta, söxuð til skreytingar

Skref1

  • Fletjið pizzudeigið eins þunnt og hægt er.
  • Leggið það á hitaðan pizzustein eða í pizzuform.

Skref2

  • Dreifið súkkulaðinu jafnt yfir deigið, ekki alveg út á brúnir.
  • Dreifið rjómaostinum í litlum klípum yfir súkkulaðibitana.
  • Stráið hnetum þar yfir og að síðustu sykurpúðunum.

Skref3

  • Bakið pizzuna við óbeinan hita á efri grind á grilli (eða á neðri grindinni ef notaður er pizzusteinn) í 6-8 mínútur.
  • Munið að hafa grillið lokað á meðan baksturinn fer fram.
  • Berið strax fram.

Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir