Mánudagur - Laxatortillur með litríku salsa og sýrðum límónu-rjóma
Þriðjudagur - Burrata með pestó og fíkjum
Miðvikudagur - Sataykjúklingur í sumarlegu salati
Föstudagur 17. júní - Pönnuköku hnallþóra
Við tökum fagnandi á móti nýrri viku með ljómandi góðum uppskriftum fyrir vikumatseðil fjölskyldunnar. Í tilefni þjóðhátíðardags okkar Íslendinga föstudaginn 17. júní mælum við svo eindregið með dásamlegri pönnukökuhnallþóru enda heldur betur gott tilefni fyrir svona hnossgæti.