Þriðjudagur - Pasta með hráskinku og mozzarella kúlum
Miðvikudagur - Rjómalöguð tómatsúpa með kjúklingi
Fimmtudagur - Heitur brauðréttur með skinku og brokkolí
Föstudagur - Kjúklingaborgari með osti og kóríander majó
Við tökum fagnandi á móti nýju ári með nýjum og spennandi vikumatseðli. Eldamennskan er létt og þægileg og réttirnir hver öðrum betri! Á seðli vikunnar má meðal annars finna ljúffenga fiskiböku, einfaldan pastarétt, rjómalagaða súpu, kjúklingaborgara og fleira góðgæti. Verði ykkur að góðu og gleðilegt nýtt ár.