Mánudagur – Mozzarella fiskréttur
Þriðjudagur – Góðostastangir og meðlæti
Miðvikudagur – Kjötbollur í kröftugri rjómasósu
Fimmtudagur – Taco með hakki og sumarsalsa
Föstudagur – Djúsí borgari með Dóra sterka
Við tökum fagnandi á móti sumardeginum fyrsta með ljúffengum uppskriftum sem koma allri fjölskyldunni í sannkallað sumarskap. Hvort sem þig langar í fisk eða taco, borgara eða salat ættir þú að finna eitthvað við þitt hæfi á matseðli vikunnar. Svo er upplagt að skella í dýrindis bananaköku um helgina og njóta vel.