Þriðjudagur - Hrekkjavökuostakúla með mexíkósku ívafi
Miðvikudagur - Rjómalagað hakk og pasta
Fimmtudagur – Vanilluskyrsþeytingur með jarðarberjum, engifer og grænmeti
Föstudagur – Pizza kjúklingaréttur með pepperóní og ostasósu
Nóvember er á næsta leiti og við mælum heilshugar með reyna að hafa mánuðinn eins ljúfan og notalegan og kostur er. Þægilegar fjölskylduuppskriftir eru í aðalhlutverki þessa vikuna og þá tökum við skemmtilegan snúning á föstudagspizzunni með pizza kjúklingarétt sem hittir beint í mark!