Mánudagur - Þorskur með smjörsósu, chili og furuhnetum
Þriðjudagur – Skyrskál með bláberjum
Miðvikudagur – Frönsk lauksúpa
Föstudagur – Lúxusborgari með laukhringjum, beikoni og Dala hring
Jólaandinn svífur yfir matseðli vikunnar og við erum komin í sannkallað hátíðarskap. Við gæðum okkur á dýrindis þorski með smjörsósu, borðum létta og ljúffenga skyrskál, útbúum girnilegan jólaostabakka, græjum jólaísinn og hringjum inn jólahátíðina með alls kyns kræsingum. Njótið vikunnar og gleðileg jól. 🎄