Þriðjudagur – Tacos með kjúklingi og mexíkóskri ostablöndu
Miðvikudagur – Eggjasalat með grískri jógúrt og avocado
Fimmtudagur – Kínóaskál með ristuðum kjúklingabaunum og ostakubbi
Föstudagur – Ómótstæðileg ostapizza
Ný vika - nýr matseðill - nýjar samverustundir. Við höldum áfram að færa ykkur bragðgóðar hugmyndir fyrir vikumatseðil fjölskyldunnar og bjóðum upp á klassískar uppskriftir í bland við nýjar. Sjálfur konudagurinn er svo á sunnudaginn og við mælum með að halda upp á hann alla helgina með ómótstæðilegri ostapizzu, trufluðu fajitas með tempura risarækjum og klassískri kryddköku.