Mánudagur - Ofnbakaður fiskur með rjómaosti og eplum
Þriðjudagur - Grísk jógúrt með berjum og tröllahöfrum
Miðvikudagur - Kotasælu gnocchi með ostasósu
Fimmtudagur - Kjúklingur með rjómaosti, papriku og chili
Við tökum fagnandi á móti nýju ári með nýjum og spennandi vikumatseðli. Eldamennskan er létt og þægileg og réttirnir hver öðrum betri! Á seðli vikunnar má meðal annars finna ofnbakaðan fisk, gríska jógúrt með berjum og tröllahöfrum, kotasælu gnocchi, pizzufléttu og fleira góðgæti. Verði ykkur að góðu.