Mánudagur – Þorskur í paprikusósu
Þriðjudagur – Rauðrófu hummus með ostakubbi
Miðvikudagur – Súrdeigsbrauð með sveppum og kotasælu
Fimmtudagur – Rjómalagað hakk og pasta
Föstudagur – Kjúklingur í sveppasósu með beikonbitum og blaðlauk
Nú er febrúar rétt handan við hornið og þar sem hver lægðin á eftir annarri heimsækir landið er ekki annað í stöðunni en að gæða sér á góðum mat, baka kannski smá og umfram allt verja tíma með uppáhalds fólkinu okkar. Við færum ykkur nýjar og spennandi uppskriftir í vikunni og mælum með að þið prófið sem flestar!