Mánudagur - Laxa taco með avocado og lime dressingu
Þriðjudagur - Quesadilla með Dala Brie, vorlauk og vínberjum
Miðvikudagur - Mexíkósk kjúklingasúpa
Fimmtudagur - Pasta með beikonostasósu
Föstudagur - Pizza með sveppum, Feyki og truffluolíu
Við tökum fagnandi á móti nýrri viku og færum ykkur nýjan vikumatseðil með Ostóber ívafi. Hvernig væri að prófa quesadillas með Dala Brie eða skella í mexíkóska kjúklingasúpu? Nú eða bjóða fjölskyldunni upp á nýjan pastarétt eða spennandi trufflupizzu? Hvaða uppskrift sem verður fyrir valinu erum við þess nokkuð viss um að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum.